Þjónustan okkar

Við vinnum með fyrirtækjum af öllum stærðum – frá sprotafyrirtækjum á frumstigi til stofnana – til að búa til spennandi vörur. Hverjar sem kröfurnar eru fyrir hugbúnaðarlausnina þína, þá hefur teymið okkar fulla þekkingu og kunnáttu til að láta það gerast.

Hugbúnaðarþróun

Hæfileikaríka teymið okkar hjá Víkonnekt þróar hraðar og neytendavænar vefsíður eftir þínum þörfum. Þarft þú stuðning við framenda eða bakendaþróun, hýsingu, birtingu (eða þetta allt)? Við búum til hagkvæma sérsniðna pakka fyrir þig. Við erum með þér alla leið, útfærum tillögur þínar og látum hugmyndina þína verða að veruleika.
Uppbygging hugbúnaðar icon Uppbygging hugbúnaðar icon

Uppbygging hugbúnaðar

Hugbúnaðarsérfræðingar okkar hanna og byggja hagkvæmasta hugbúnaðararkitektúrinn fyrir þig. Við tryggjum gagnaöryggi, varanleika og skalanleika. Við beitum aðferðum sem virka og finnum fyrir þig sveigjanlegar, einfaldar og varanlegar lausnir.

Appþróun icon Appþróun icon

Appþróun

Finnst þér ekki þægilegt að geta notað snjallsíma hvar sem þú ert? Neytendur elska það. Í dag eru öpp hluti af stafrænni stefnu margra fyrirtækja. Gott app getur verið afar öflugt viðskiptatæki og reynslumikla smáforritarateymið okkar veit það. Við útfærum appið sem þú ert með í huga.

Vefþróun icon Vefþróun icon

Vefþróun

Hröð, fallega hönnuð og grípandi vefsíða er flestum fyrirtækjum ómissandi. Vefsíðan þín er vettvangur fyrir neytendur að kynnast vörumerkinu þínu og lykillinn að því að laða til sín trúa viðskiptavini. Vefsíðan sýnir hver þú ert, sem og gæði fyrirtækis þíns. Hún sýnir mögulegum neytendum hvernig það er að eiga viðskipti við þig.

Árangurssögur viðskiptavina okkar

Við tökum árangri viðskiptavina okkar fagnandi. Við höfum hjálpað viðskiptavinum í öllum atvinnugreinum, allt frá menntunarstofnunum til spennandi sprotafyrirtækja.

Árangurssögur
Devops icon Devops icon

Devops

Fólk breytist - forrit þurfa að breytast líka. DevOps sérfræðingar okkar tryggja að undirliggjandi innviði og uppbygging hugbúnaðarins þíns séu sterk, skalanleg og örugg. Það dregur úr áhættu og gefur þér svigrúm til að vaxa á meðan viðskiptavinum þínum fjölgar.

QA testing icon QA testing icon

QA testing

Reyndir QA verkfræðingar okkar framkvæma gæðapróf með markhópnum þínum (eða núverandi neytendum!).

Gagnagreining icon Gagnagreining icon

Gagnagreining

Gögn eru lykilatriði í að bæta notendaupplifun: Þau sýna okkur hvað virkar, af hverju það virkar og hvernig á að gera upplifunina enn betri fyrir notendur þína. Þú kemur með gögnin. Við komum með gagnasérfræðing sem hefur umsjón með gagnaöflun, úrvinnslu, hreinsun og ETL.

Skoðaðu fleiri þjónustur
Ertu að leita að metnaðarfullum samstarfsaðila til að hjálpa þér að fullkomna vöruna þína? Náðu viðskiptamarkmiðum þínum með Víkonnekt.
Bókaðu fund